10. júlí 2010

Af því að það er heimsmeistaramót...

Þetta er reyndar of seint, Þjóðverjar verða ekki heimsmeistarar þetta árið, en þeir eru heimsmeistarar tölfræðilega séð.

Basta - Give Me Hope Joachim

5. júlí 2010

Það er svo heitt!

Undanfarna daga er búið að vera óbærilega heitt í Þýskalandi. Hitastigið er í kringum bræðslumark hitamæla og þýska veðurstofan varar við mögulegum skógarbrunum, í kjölfarið. Lene Voigt-almenningsgarðurinn í Leipzig, sem liggur í nágrenni við heimili mitt, er allur sviðinn. Jafnvel þó það hafi rignt í nótt, virðist hitastigið samt ekki hafa breyst; enn blæs hlýju lofti úr suðri, á meðan sólin grillar saklaust mannfólkið. Ég er að stikna.